„Bjarnaháttur“
23. apríl, 2026Fuglar
23. apríl, 2026Beðið eftir vori
Þegar klakinn þiðnar hér
og þeyr í sinni,
vorhugurinn vakna fer
í vitund minni.
Inn til fjalla aftur sækjum
unaðsstundir,
glaðvært klið í litlum lækjum
leikur undir.
Himnesk djásnin heiðarlanda,
hjónin kanna,
ísuð fjöll og eyðisanda
öræfanna.
