Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Á ástarkodda

Á ástarkodda, undirsæng og yfirdýnu
hvílir þú í hjarta mínu
hverja nótt í rúmi þínu.

Situr hjá þér sálin mín og syngur kvæði
um ótal þúsund ástargæði
er við lifðum saman bæði.

Þegar gleðitárin taka að titra á hvarmi
fel ég, bundinn ástararmi
andlitið í þínum barmi.

Á litla brjóstið ljúft er mér að leggja eyra
til að mega heyra, heyra
hjartað segja: meira, meira.

Páll Ólafsson