Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Það blanda allir landa upp til stranda

Það blanda allir landa upp til stranda

og vanda sig svo við að brugga bjór.

Síðan drekkur fólkið þennan fjanda

og viðskiptahópurinn er stór.

Þeir selja hver öðrum slíkan varning

og úrvalið af tegundum er gott.

Þó þeir stundi líka ýmsan barning

þá lifa þeir víst ótrúlega flott.

Já það blanda allir landa upp til stranda

og standa í þessu nótt sem nýtan dag.

En unglingarnir valda mörgum vanda

þeir kunna ekki foreldranna fag.

Úr turnunum súrhey börnin reykja

og steikja sér svo smáfugla á tein.

Næstum því í hlöðunum þau kveikja

svo gamla fólkið rekur bara upp vein.

Já það blanda allir landa upp til stranda

og standa í þessu nótt sem nýtan dag.

En unglingarnir valda mörgum vanda

þeir kunna ekki foreldranna fag.

Þorsteinn Eggertsson