Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Á kránni
Ó, pabbi minn kæri æ, komdu með mér heim
því klukkan er senn orðin eitt.
Þú lofaðir í morgun að koma snemma heim,
á kránni að tefja’ ekki neitt.
Nú er eldurinn dauður og allt er orðið kalt
og enn bíður mamma’ eftir þér,
hún situr með hann Villa litla, sjúkur hann er,
og sáralítil hjálp er í mér.
Ó, pabbi minn kæri, æ, komdu með mér heim
sko klukkan slær tvö, fylgdu mér.
Það kólnar og hann Villi litli er veikari en fyrr
hann var þó að spyrja eftir þér.
Og það segir hún mamma, ef þyngi honum enn,
að þá mun hann deyja í nótt.
Og þessar fréttir bað hún mig að bera til þín,
æ, blessaður komdu nú fljótt.
Kom heim, kom heim,
ó, pabbi minn kæri kom heim.
Ó, pabbi minn kæri æ, komdu með mér heim
því klukkan er senn orðin þrjú.
Og tíminn er svo langur því tómlegt heima er,
við tvær erum aleinar nú.
Hann Villi litli er dáinn já Drottinn minn hann tók,
hann deyjandi spurði um þig.
Hann kallaði á þig, pabbi minn, og bauð þér góða nótt
og bað þig að kyssa sig.
Kom heim, kom heim,
ó, pabbi minn kæri kom heim.
Mánar
