Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Það liggur svo makalaust
Það liggur svo makalaust ljómandi’ á mér,
mér líkar svo, vel hvernig heimurinn er,
mér sýnist allt lífið svo ljómandi bjart
og langar að segja svo dæmalaust margt.
:,: Hæ
dúllía! dúllía! dúllía! dæ!:,:
mér sýnist allt lífið svo ljómandi bjart
og langar að segja svo dæmalaust margt.
Það skilst varla hjá mér eitt einasta orð,
mér allt sýnist hringsnúast;stólar og borð.
Minn hattur er tíndur og horfið mitt úr,
Ég held ég sé komin á sjóðandi túr.
:,: Hæ dúllía! dúllía! dúllía! dæ!
mér sýnist allt lífið svo ljómandi bjart
og langar að segja svo dæmalaust margt.
