Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Anna í Hlíð
Ég fór að smala kindum hér
eitt kvöldið fram í dal,
og kominn var ég lengst
inn í bláan fjallasal.
Þá ungri mætti ég blómarós
með augun djúp og blíð,
og er ég spyr að nafni
hún ansar, „Anna í Hlíð”.
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
með augun blá svo yndisfríð.
Af ástarþrá ég kvalir líð.
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
nei, engin er eins fríð
og hún Anna mín í Hlíð.
Ég örmum vafði Önnu
svo hún andann varla dró.
Mig ástin var að kæfa
og ákaft hjartað sló.
Svo kyssti ég hennar mjúka munn
og augun djúp og blíð
og mælti milli kossa;
„Ó, Anna mín í Hlíð”.
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
ég elska mun þig alla tíð
og örmum vefja ár og síð.
Anna í Hlíð, Anna í Hlíð,
þú ert svo ung og fríð
elsku Anna mín í Hlíð.
Eiríkur K. Eiríksson
