Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Augnfró

Ragnhildur mín björt á brá
ber af öllum sínu.
Hvítasunnuengil á
enginn, líkan mínum.

Ósköp get ég elskað heitt,
ýft og læknað sárin,
tárunum í brosin breytt,
brosað gegnum tárin.

Brosin þín og blíðuorð
brjóstið fyllir vonum
og fleygja öllum fyrir borð
fjandans áhyggjonum.

Þér ég lifi og lifað hef
lífsins stundir allar,
þér mig gaf og þér mig gef
þar til dauðinn kallar.

Höndin þín, svo hvít og smá,
hún með fingramáli
bægir öllu böli frá
brjóstinu á Páli.

Þó eilífðin mér yrði að nótt
augasteina mína
gefa myndi ég fús og fljótt
fyrir návist þína.

Ekki sér á armleggjunum þínum,
þegar bregður þeim á loft,
þó ég hafi kysst þá oft,
lýsa þeir eins og ljós fyrir augum mínum.

Eins og gull af eiri ber,
eða sumar vetri,
öllum konum ertu hér
yndislegri og betri

Ástin þín er ekki dyggð,
ekki skylda heldur,
hún er ekki heldur tryggð,
hún er bara eldur.

Sérðu ekki að dagur dvín?
Dregur yfir húmið.
Kossaríka konan mín
komdu nú í rúmið.

Páll Ólafsson