Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Bjarni og nikkan
Bjarni með nikku á barmi,
brosglampar ljóma á hvarmi.
Gómum um gripin rennir
og glaðlega hljóma slær.
Höfuð við hljómfallið sveigir,
harmonikkuna hann teigir.
Dillandi valsinn dunar,
Í dans leiðast piltur og mær.
Kom þú í faðm mér, í faðm mér
hvíslar hið hreimblíða mál.
Bjarni og nikkan,
Bjarni og nikkan
eiga sér eina sál.
Bjarni með nikku á barmi,
brosglampar ljóma á hvarmi.
Dillandi valsinn dunar,
Í dans leiðast piltur og mær.
Loftur Guðmundsson
