Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Brúnaljósin brúnu

Ó, viltu hlusta, elsku litla ljúfan mín,
ljóð ég kveða vil um þig,
því mildu brúnaljósin brúnu þín,
blíð og fögur heilla mig.

Hugfanginn hlýða sæll ég vil á sönginn þinn,
syngdu þitt fagra, ljúfa lag
þar sem að alla tíð ég unað finn
í ástar þinnar töfrabrag.

Bjartar vonir þínar vaka og þrá
um vorsins fögru draumalönd
og vin, sem þú gafst hjarta þitt og hönd.

Ó, viltu hlusta, elsku litla ljúfan mín,
ljóð ég kveða vil um þig,
því mildu brúnaljósin brúnu þín,
blíð og fögur heilla mig.

Jenni Jóns