Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Drottinn minn
Þegar lít ég laufgan skóg,
lækjarbunu, græna tó,
sólu vafin, blómin björt,
brjóstið fyllist gleði ört.
:/:Drottinn minn, Drottinn minn,
dásemd þína ætíð finn:/:
Er ég heyri leikið lag,
ljúfa söngva, góðan brag,
fléttað saman fagurt mál
færist ró í mína sál.
Drottinn minn.............
Þegar eitthvað út af ber,
angur sest að hjarta þér,
líttu' á allt sem Guð þér gaf,
gróður, stjörnur, jörð og haf.
Drottinn minn.............
Sumar, vetur, vor og haust
vakir Drottinn, endalaust.
Ef þú réttir honum hönd
hratt þig ber að gæfuströnd.
Drottinn minn.............
Margrét Ólafsdóttir
