Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ég er á leiðinni
Á morgun er kominn nýr dagur
og sporin sem ég steig í nótt
firnast fljótt, á þessum stað
gleymir þú mér eða hvað.
Skipið skríður frá landi
með skellum við skundum á braut
augun skær, um höfin breið
mér fylgja alla leið.
Ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni
til þess að segja þér hve heitt ég elska þig.
En orðin koma seint, og þó ég hafi reynt,
mér gengur nógu illa að skilja sjálfan mig.
Á sjónum, enn ég lafi
oft ég heilann brýt um það.
Hvort örlögin, mér hafi
ætlað einmitt þennan stað.
Þú veist að ég uni ekki í landi
en verklaginn er ég á sjó.
svo þú sérð, að ég verð,
að fara þessa ferð.
Ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni
til þess að segja þér hve heitt ég elska þig.
En orðin koma seint, og þó ég hafi reynt,
mér gengur nógu illa að skilja sjálfan mig.
