Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ég lifi í draumi
Ég lifi í draumi, dreg hvergi mörkin dags og nætur,
sveiflast aðeins ósjálfrátt,
í hægum gangi, á fullt í fangi með að finna það
sem oftast reynist öfug átt.
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum,
lentur hringsólandi á vegi miðjum.
Ég lifi í draumi, dreg hvergi mörkin dags og nætur,
sveiflast aðeins ósjálfrátt.
Ég lifi í tómi, tek engan þátt í trylltum dansi
fólksins allt í kringum mig.
Aleinn á randi veit að minn vandi er að vera þar
sem enginn getur áttað sig.
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili,
leitandi að báti á réttum kili.
Ég lifi í tómi, tek engan þátt í trylltum dansi
fólksins allt í kringum mig.
Ég lifi í veröld, veit ekki hvaða vindar þjóta
en þeir fara fram hjá mér.
Einskonar fangi á víðavangi eða varnarlaus
gegn því sem ér á meðan er.
Það er líkt og ég sé lamaður af ótta.
Líf mitt rennur burt á hröðum flótta.
Ég lifi í veröld, veit ekki hvaða vindar þjóta
en þeir fara fram hjá mér.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
