Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ég sé lífsins tré
Ég sé lífsins tré
á háum hól
á himni sé ég bjarta morgunsól
og ég hugsa með mér
þetta' er yndisleg jörð
Ég sé gömul hjón
og glaðleg börn
sem ganga frjáls við litla tjörn
og ég hugsa með mér
þetta' er yndislegt líf
Með bjartsýni' í huga
ég býð þeim góðan dag
ég brosi er ég heyri
þau syngja þetta lag
og með von og trú
í veröldinni nú
við getum lifað ég og þú
Ég sé lítil börn
og lífsins tré
og lífið sjálft er allt sem ég sé
og ég hugsa með mér
þetta' er yndislegt líf
og ég hugsa með mér
þetta' er yndisleg jörð.
Weiss - Kristján Hreinsson
