Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ég sé um hestinn

Ég sé um hestinn þú sérð um hnakkinn
við skulum hleypa á skeið
Ég sé um hestinn þú sérð um hnakkinn
við skulum fara í út reið reið

Út í myrkrið meðfram ánni
framhjá hunangshlöðunni
Við skulum ríða, enn sú blíða
þar til örlar á dagsbirtunni

Ég sé um hestinn þú sérð um hnakkinn
við skulum hleypa á skeið
Ég sé um hestinn þú sérð um hnakkinn
við skulum fara í út reið reið

Hlustaðu á dýrin en sá söngur
ég hef aldrei heyrt fegurri hljóð
Þú veist sum dýrin framleiða söng sinn
með því að núa fótum af eld móð

Ég sé um hestinn þú sérð um hnakkinn o.s.frv.

Rúnar Júlíusson