Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Einshljóðfæris synfónían

Fyrir nokkrum árum þegar fékk ég gítarinn
ég fór með hann beint upp á loft og æfði mig um sinn.
Í herberginu mínu sat og hamraði á hann þar.
Fyrir hugskotssjónum rúlluðu allar gullnu plöturnar.

Ef haldin voru skemmtikvöld, ég í hendingskasti fór
og hélt þar konsert, fólkið hló, og kallaði: sá er stór.
Ég vildi taka aukalag og endurtaka það
ætli þurfi ekki bara hljómsveit til að koma mér af stað.

Þá dreymir mig um bassann sem botninn fylla kann
og bið svo guð um sólógítar til að styðja hann.
Ég trommur þarf svo geti ég takti haldið vel.
og tígulega’ í fjarska að heyra strengi flott ég tel.

Við spilum allir saman, sem sprækum mönnum ber
og spilverk okkar hljómar eins og tónlist inní mér
en þegar draumnum lýkur ég ei þarf að orðlengja
bara einshljóðfæris synfóníuhljómsveit, sex strengja.

Ég sem jú fyrir kærustuna og syng henni öll mín ljóð,
en samt ég fatta ekki af hverju grænkar við mín hljóð.
Hún segir fyrirgefðu en ég finn er að mér bar
mér finnst mér verða óglatt er ég heyri þinn gítar.

Eitt segulband er gerði ég og sendi út um allt
var sent til baka í pósti og sagt: Þú hætta þessu skalt!
Ég fékk mörg bréf og endurtek nú innihaldið hér:
Þú ættir að fá þér vinnu þar sem söngs ei krafist er.

Þá dreymir mig um bassann sem botninn fylla kann
og bið svo guð um sólógítar til að styðja hann.
Ég trommur þarf svo geti ég takti haldið vel.
og tígulega’ í fjarska að heyra strengi flott ég tel.