Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Fröken Reykjavík

Hver gengur þarna eftir Austurstræti
og ilmar eins og vorsins blóm,
með djarfan svip og ögn af yfirlæti,
á ótrúlega rauðum skóm?
Ó, það er stúlka engum öðrum lík,
það er hún Fröken Reykjavík,
sem gengur þarna eftir Austurstræti
á ótrúlega rauðum skóm.
Og því er eins og hafi vaxið
vorsins blóm á stræti.

Hver situr þar með glóð í gullnum lokkum
í grasinu á Arnarhól,
svo ung og djörf í ekta nælonsokkum
og nýjum, flegnum siffonkjól?
Ó, það er stúlka engum öðrum lík,
það er hún Fröken Reykjavík
sem situr þar með glóð í gullnum lokkum
í grasinu á Arnarhól,
svo æskubjört og fríð og nett
í nýjum kjól- og sokkum.

Hver svífur þarna suður tjarnarbakka
til samfundar við ungan mann,
sem bíður einn á brúnum sumarjakka
hjá björkunum við Hljómskálann?
Ó, það er stúlka engum öðrum lík,
það er hún Fröken Reykjavík
sem svífur þarna suður Tjarnarbakka,
til samfundar við ungan mann
sem bíður einn hjá björkunum
við Hljómskálann, Hljómskálann.

Jónas Árnason