Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Garún

Hratt er riðið heim um hjarn,
torfbærinn i tunglsljósinu klúkir.
Draugalegur, dökklæddur
myrkradjákni á hesti sínum húkir.

Tunglið hægt um himinn líður
dauður maður hesti ríður,
Garún, Garún.

Höggin falla á dyrnar senn
komin er ég til þín enn
ó, Garún
öll mín ást í lífinu,
sem ég elskaði og tilbað alltaf
var hún.

Komdu með mér út að ríða
lengi er ég búinn að bíða,
Garún, Garún,

Tvímennt er úr hlaðinu
út á hálu vaðinu, smeyk er hún.
Djáknin ríður ástsjúkur.
Holar tóftir, berar kjúkur
Garún,

Tunglið hægt um himinn líður
dauður maður hesti ríður,
Garún, Garún.

Magnús Eiríksson