Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gölli Valdason

Og þó þeir væru að segja
sem sjálfir eitt sinn deyja
hve svakalegur værir þú,
ó Gölli Valdason,
þá vildi ég bara segja
að sumir ættu að þegja
það saknar þeirra enginn
ó Gölli Valdason.

Gölli hann var einn af okkur peyjum
sem aldrei kannski rétta strikið fann
fæddur var og uppalinn í Eyjum
og ekki var nú mulið undir hann,
og ekki var nú mulið undir hann.

Fimmtán ára af flestum peyjum  bar hann
þeir fundust ekki klárari  til sjós.
Með aflakóngum eftirsóttur var hann.
Sem afbragðsmaður hlaut hann þökk og hrós,
sem afbragðsmaður hlaut hann þökk og hrós.

Á meðan aðrir innan dyra dvöldu
og dreymdu um frægð í Cambridce eða Voss
hans skóli var hjá útsynningi og öldu
og oft á tíðum hlaut hann votann koss,
og oft á tíðum hlaut hann votann koss.

Já það er satt þeir sendu honum mínus
sem sjálfir aldrei sprændu á þorskaslóð
því hann var ekki einn af þessum fínu
sem eiga sitt á þurru í sparisjóð,
sem eiga sitt á þurru í sparisjóð.

En þeir sem aldrei girntust glasasyndir
en göfugmennsku tigna allra mest
þeir ættu að birta sinna sálar myndir
og svo skulum við dæma hverjum ferst,
og svo skulum við dæma hverjum ferst

Og seinna þegar hinstu skuggar skella
og skola Gölla upp til næsta lands
þá ætla ég á leiði hans að hella
úr heilli því að ég mun sakna hans,
úr heilli því að ég mun sakna hans.

Ási í Bæ