Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hægt og hljótt

Kvöldið hefur flogið alltof fljótt,
fyrir utan gluggann komin nótt.
Kertin eru' að brenna upp,
glösin orðin miklu meira' en tóm.

Augnalokin eru eins og blý,
en enginn þykist skilja neitt í því
að tíminn pípuhatt sinn tók
er píanistinn sló sinn lokahljóm.

Við hverfum hægt og hljótt, út í hlýja nóttina
Hægt og hljótt, göngum við heim götuna
Einu sinni, einu sinni enn.

Eftir standa stólar, bekkir, borð,
brotin glös, sögð og ósögð orð.
Þögnin fær nú loks sinn frið.
Fuglar yrka nýjum degi ljóð.

Við hverfum hægt og hljótt, út í hlýja nóttina,
hægt og hljótt, göngum við heim götuna.

Hægt og hljótt, göngum við heim götuna,
hægt og hljótt, í gegnum hlýja nóttina
einu sinni... einu sinni enn

Valgeir Guðjónsson