Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þín hvíta mynd
Þín hvíta mynd
Eins og tunglskinsljóð sem blærinn ber
úr bleikri firrð á vængjum sér.
Líður mér um svefninn hægt og hljótt
þín hvíta mynd um svarta nótt.
Kannske var það draumur
sem ég gat ekki gleymt,
en eitt er víst að síðan er í hjarta mínu reymt.
Dvelst mér bak við hljóð og horfin ár
Hið hvíta seið og dökkar brár.
Og hendi það mig aftur að horfa í augun blá
ég heiti því að standast aldrei framar töfra þá .
