Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Konugrey

Sérhvern dag gengur hún um götuna,
burt úr bæ,frá öllum húsum
er þú lýsir upp,hlý og notaleg.
Sérhvern dag, ein á ferð í bæinn aftur,
kaffihúsum gengur hjá. Í kaffi langar
og spjall við þig, í von þú sjáir sig.

Hefurðu’ ekki séð hana, með enga skó
gengur þrjóskunni´á , sí og æ.
Sástu hennar svip?
Konugrey, með svo flókið hár,
þína vorkunn þiggur ei,
þér hún segir nei, konugrey.
Leikin hart, gamalt teppi fyrir sjal,
fyrir erm, sig hylur með því,
klædd í lítinn kjól, kalda fætur fól.

Hefurðu’ ekki séð hana, með enga skó
gengur þrjóskunni´á , sí og æ.
Guð einn um það veit hvar hún býr,
hvernig líf hún á.
Þína vorkunn þiggur ei,
snýr sér undan beisk, konugrey.

Konugrey, Guð einn um það veit hvar hún býr
og hví hún fer um ein, sí og æ
og hvort hún átti vin.
Kannski bað hún fyrir þér, í gegnum þig hún sér,
konugrey.

Guðlaugur Gunnarsson