Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lækurinn
Lækurinn
Lífið
rennur sem lækur
með lygnu og djúpan hyl,
grefur sér farveg og fellur
um flúðir og klettagil.
Við bakkana beggja megin
blandast hin tæra lind,
uns lækurinn orðinn er allur
annarra spegilmynd.
Lækurinn
minnir á lífið,
lindin er tær og hrein,
í fljótið ber hann öll fræin
sem falla af næstu grein.
Því fljótið er lífsins ferja
er flýtur með þungum straum,
ljóðið um lindina tæru,
lækjarins óskadraum.
Sigurður Hansen
