Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Bíddu pabbi bíddu mín

Í hinsta sinn að heiman lágu spor mín,
því ég hamingjuna fann ei lengur þar,
og hratt ég gekk í fyrstu uns ég heyrði fótartak,
og háum rómi kallað til mín var.

Kallað: "Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín"

Ég staðar nam og starði á dóttur mína
er þar stautaði til mín svo hýr á brá,
og mig skorti kjark að segja henni að bíllinn biði mín
að bera mig um langveg henni frá.

Hún sagði: "Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt
Bíddu pabbi, bíddu mín"

Ráðvilltur ég stóð um stund og þagði,
en af stað svo lagði aftur heim á leið.
Ég vissi að litla dóttir mín, hún myndi hjálpa mér
að mæta vanda þeim sem heima beið.

Hún sagði: "Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt
Bíddu pabbi, bíddu mín"

Iðunn Steinsdóttir