Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Liljan
Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel,
svo blíð og svo björt og svo auðmjúk,
en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti’ ekki’ um litinn né ljómann,
en liljan í holtinu’ er mín.
Þessi lilja’ er mín lifandi trú,
þessi lilja’ er mín lifandi trú,
hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja’ er mín lifandi trú.
Og þó að í vindunum visni
á völlum og engjum hvert blóm,
og haustvindar blási um heiðar
með hörðum og deyðandi róm,
og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó,
hún lifir í hug mér sú lilja,
og líf hennar veitir mér fró.
Skarpheiður Gunnlaugsdóttir
