Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Öllu meir
Þú öllum meiri og æðstur ert,
já yfir heiminn og sköpun hafinn ert.
Þín viska’ er meiri en vegir manna og ráð,
veldi þitt er engri sköpun háð.
Þú æðri kóngum og konungstign,
það kannast enginn við nokkurn á við þig.
Þú meiri ert en mesti auður hér,
meira virði’ en nokkur maður sér.
Krossfestur, köld þín gröfin beið,
komst með líf, misstir þitt um leið.
Fögur rós þeir fótum tróðu þig
þú fallið tókst og mundir mig öllu meir
Guðlaugur Gunnarsson
