Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Píla pína
Hljótt er nú í húsum inni,
harmur býr í allra sinni.
Hvar er litla Píla pína?
Sárt er að missa sína.
Burt hún hvarf og brekkan grætur,
birtist mér í draumi nætur,
veslings litla Píla pína.
Sárt er að missa sína.
Músaguð við hættum hlífi
henni sé hún enn á lífi.
Græt ég litla Píla pína.
Sárt er að missa sína.
Rætist óskir hennar, heitar,
hún það finni sem hún leitar.
Komdu aftur, Píla pína!
Sárt er að missa sína.
Kristján frá Djúpalæk
