Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Sem hjörturinn þráir
Sem hjörturinn þráir að lifandi lindum
og lindarnar keppa af fjallanna tindum
ofan í dalina og svo út í sjó,
sumar og vetur til þín svo ég þreyi
og því kem ég til þín á sérhverjum degi
í faðm þér að hníga og finna þar ró.
Horfðu á vorin á vötnin og snjóinn
hvað vitlaust þau langar að komast í sjóinn,
eins langar, hjartkæra unnustan mín,
hjartslætti, vonir og hugsanir mínar
að hvílast og dreifa sér innan um þínar
og þess vegna leggja þær leiðir til þín.
Vorið er komið og veturinn dáinn,
vil ég því una mér rétt eins og stráin
brúna frá himni við brásólar yl.
Ég ætla að láta þar nótt sem að nemur,
því næst getur skeð þegar veturinn kemur
ég hnígi til foldar og finni ekki til.
Páll Ólafsson
