Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Senjóríturnar suður á Spáni
Nú vil ég greina í litlu ljóði
frá landi herlegu, Spáníá.
Þar kostar álíka klára vínið
og kranablávatnið okkur hjá.
Og senjóríturnar suður á Spáni,
þær syngja um ástir með ljúfum hreim,
pálmanna strönd þegar merlar máni,
en mikið er varasamt að treysta þeim.
Í Barselónu var lagleg hnyðra
með limi netta og svarta brá.
Hún uppfartaði á einum barnum,
og átján sumra var hringagná.
En senjóríturnar....
Hún brosti þegar ég bað um whiský,
því brosi er virtist svo laust við tál,
og var svo kankvís og hýr og hnellin
að hjartakornið mitt fór í bál.
En senjóríturnar....
Ég rann í skyndi til ræðismannsins
og rjúka vildi í að gifta mig.
En drusilmennið það mælti drýldið:
„Ég myndi láta hana eiga sig.“
því senjóríturnar....
Á dansstað hugðist ég drekkja raunum
og dreif mig þangað, en rakst þar á
þá litlu svarteygðu sem ég unni,
við slána ljótan hún var að kjá.
því senjóríturnar....
Svo hlessa bæði og hryggur varð ég
að hálfa flösku í einu drakk.
Þá greip mig bræði, ég gekk að kauða
og gaf á kjaft svo að vörin sprakk.
En senjóríturnar....
En róninn dró þá upp rýting stóran
og rak á kaf í minn hægri arm
svo blóðið sprautaðist yfir okkur
en einkum kvinnunnar falska barm
Því senjóríturnar....
Í mánuð lá ég í mínum sárum
og miklum kvölum, ó þvílíkt stand!
Með skuldir stórar – og skútan farin
en skjátan komin í hjónaband.
Því senjóríturnar....
Því segi ég piltur, ef suður ferðu,
og sælu býður þér pía slík,
þá gættu að þér. Það gefst oft betur
að giftast stelpu úr Reykjavík.
Því senjóríturnar....
