Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Sofðu litla ljúfa barn

Sofðu litla, ljúfa barn,

lát þig ekkert græta.

Minnstu þess þá myrk er nótt

mamma skal þín gæta.

Morgundagur bjartur býr

barni fögur ævintýr,

lán og leiki mæta.

Sofðu litla, ljúfa barn,

líð í drauma heima.

Kollinn lúna, kodda á,

kyrrð og friður geyma.

Enn er leikur, elskan mín,

iðja, nám og vegferð þín,

enn þig á að dreyma.

Sofðu litla, ljúfa barn,

leggðu hendi fína,

fingursmáa, unga enn,

aldursreynda' í mína.

Langar mig að leiða þig

lífs um villugjarnan stig,

greiða götu þína.

Haukur Ágústsson þýddi