Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Sölvi Helgason

Sölvi Helgason

Hver var það sem hló að sínum lítið sigldu löndum
sem skildu ekki skáld og förumenn.
Klæðalítill, fátækur á köldum Íslandsströndum,
hann kemur fram í huga okkar enn.

Var hann helgur maður eða latur flækings hundur?
Var hann sendur til að vekja nýja von?
Hvað var það minn kæri sem þú vildir okkur segja,
þú frægi skrítni Sölvi Helgason?

Eins og kristur forðum varstu krossfestur af lýðnum
sem til leti taldi heimsspeki og list.
Hög var hönd og hugur þinn og að þér hændust börnin
og marga heita konu fékkstu kysst.

Varstu helgur maður eða latur flækings hundur?
Varstu sendur til að vekja nýja von?
Hvað var það minn kæri sem þú vildir okkur segja,
þú frægi skrítni Sölvi Helgason?

Oft þú hafðir himininn að þaki þínu um nætur
og þáðir aðeins feld sem til þín var var grýtt.
Undir aldrei búandhokri, festir hvergi rætur
því hugur stefndi út á önnur svið.

Upp til hárra fjalla, þar sem fálkar einir fljúga,
þú fluttir þína bæn og þína von.
Og þó að lýður segði að þú þreyttist seint að ljúga
varstu heill og sannur Sölvi Helgason.

Magnús Eiríksson