Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Söngur förusveinsins
Ég er hinn frjálsi förusveinn,
á ferð með staf og mal,
minn boðskap fjallablærinn hreinn
skal bera nið’ r í dal.
Fallerí, fallera, fallerí,
fallera-ha-ha-ha-ha-ha
fallerí, fallera,
skal bera nið’r í dal.
Hér anga blóm, hér glóir grund,
hér gleðst ég dægrin löng.
Hér vil ég una alla stund
við ilm og glaðan söng
Fallerí ........
við ilm og glaðan söng.
Um förumannsins frjálsa veg
og fjöllin mín ég syng,
að kvöldi glaður gisti ég
á grænum mosabing.
Fallerí......
á grænum mosabing.
Nú held ég fram til heiða einn
og hraða minni för
Ég er hinn frjálsi förusveinn
á ferð með söng á vör.
Fallerí...
á ferð
með söng á vör.
Ólafur Björn Guðmundsson
