Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Stebbi
Stebbi
Er Stebbi litli fæddist, var hann fagur á að sjá.
Það fundu allir þá, hvað fyrir honum lá.
Og þegar þessi litli kútur kalsaði og hló,
þá kallaði hún mamma: Stefán, ó!
Hvað getur hann Stebbi gert að því, þó hann sé sætur
og geri allar stelpur vitlausar í sér?
Hvað varðar hann um það, hvort heimasætan grætur
og horfi rauðum augum á ´ann hvar sem hann fer?
Hvað getur hann Stebbi gert að því, þó hann sé sætur
og geti stundum verið til í hopp og hí?
Og þó að kvenfólkið það gefi honum gætur,
hvað getur hann Stebbi, aumingja Stebbi gert að því?
