Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Stúlkan við hliðið

Við hliðið stend ég eftir ein
ó elsku pabbi minn
og tárin mín svo heit og hrein
þau hníga´ á gangstíginn
og höndin veifar , veifar ótt
þú veist ég sakna þín
æ komdu aftur komdu fljótt
æ komdu þá til mín

Tra,ra.la …..

Oft réna sorgir furðufljótt
hjá fjögra ára snót.
Og langir dagar líða fljótt
við leik og margs kyns dót.
En kætin vaknar hvert sinn
er þú kemur pabbi minn.
Þá hendist ég um háls á þér
og halla kinn að kinn.

Tra,ra.la…. ( o.s.frv.)

Og þá er gaman hlegið hátt
og hjalað margt um stórt og smátt.
Og hoppað sungið svalað þrá
uns svefninn lokar brá .


Freymóður Jóhannsson