Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Stund milli stríða

Það ár sem ég fæddist var friður saminn,
er fávísir menn settu grið.
En áfram var haldið og barist og barist
og búið við vopnaðan frið.

Og vestur á fjörðum var friðnum slitið,
og fátækir daglaunamenn
börðust þar fyrir betri heimi
og berjast þar sumir enn.

Mín ævi er aðeins stund milli stríða.
- Nú stríða þeir enn. Ég bíð
og trúi á heiminn og fegurð og frelsi
og friðinn – og þetta stríð.

Jón úr Vör