Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Svífur að haustið
Svífur að haustið og svalviðri gnýr.
Svanurinn þagnar og heiðlóan flýr.
Blóm eru fölnuð í brekkunum öll.
Bylgjurnar ýfast og rjúka sem mjöll.
Fleygir burt gullhörpu fossbúinn grár.
Fellir nú skóggyðjan iðjagrænt hár.
Steingrímur Thorsteinsson
Systa litla
Hún systa mín litla á ljósgullið hár
sem liðast svo mjúkt eins og ull.
Hún hefur nú lifað í hálft þriðja ár
og hún á mörg nýstárleg gull.
Hún á brúðu í kjól og brúðan á stól.
Hún á bangsa og fallega gæs.
Og Systa á bók, en þó Systa sé klók
er hún samt ekki enn orðin læs.
Stefán Jónsson
