Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Vertu sæt við mig

Ég fór á ball í bænum,

en bara gleymdi þér

og þú varst ljóni líkust

og lékst þér svo að mér.

Þú fórst á ball með Bjarna

og Bjarni kyssti þig.

Ég veit ekki, af hverju þú hatar mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ég veit ekki, af hverju ég elska þig.

Ég fór á ball með Birnu

sem býsna falleg er.

Við svifum léttstíg saman

ég sá hún skemmti sér.

En svo var ballið búið

og ég bauð henni heim

en hún sá aðra stráka

og fór með þeim.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ég veit ekki, af hverju ég elska þig.

Við skulum vera saman

og semja frið í kvöld

og láta ást og unað

hér aftur eiga völd.

Við höfum sært hvort annað.

Ég veit þú skilur mig.

Ég veit ekki af hverju ég elska þig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.

Ég veit ekki, af hverju ég elska þig.