Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Vestast í Vesturbænum

:,: Vestast í Vesturbænum

hvar vorsól fegurst skín:,;

þar er eitt þakherbergi

og þar býr stúlkan mín.

Létt er því lundin,

lífið bjart og allt er grín,

sól gyllir sundin,

ég syng um ást og vín.

:,: Í minni eigin kompu

á ég dálítið skrín.:,:

Þar geymi ég græna flösku

með guðveig kenndri við Rín.

Létt er því .... o.s.frv.

:,:Er sól er sigin í Ægi

og sólblik hafsins dvín:,:

fer ég með mína flösku

að finna baugalín.

Létt er því .... o.s.frv.

:,:Þau ögra mér, hennar augu,

það örvar mitt Rínarvín.:,:

Svo stytta mér næturstundir

stúlkan – og flaskan mín.

Létt er því .... o.s.frv.

:,: Vestast í Vesturbænum

hvar vorsól fegurst skín:,;

þar er eitt þakherbergi

og þar í ein baugalín.

:,:Fegurra fljóði

fluttirðu aldrei vorljóð þín.

Þröstur minn góði,

það er stúlkan mín.:,:

Sigurður Þórarinsson

Stúlkan mín er mætust

Stúlkan mín er mætust

meyja og kvenna.

Sveinar ástaraugum

á eftir heinni renna.

Og þeir allir saman

á öndinni stada

yfir því hvert afbragð

hún er til munns og handa.

Dável samansett hún er.

Silkimjúk og nett hún er.

Lipur, grönn og létt hún er.

Laus við svik og prett hún er.

Ég mun alla ævi

iðka þann vana

kátur kvölds og morgna

að kyssa og faðma hana.

Sigurður Þórarinsson