Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Við svala lind
Við svala lind, svo svala, bláa og djúpa
þar síprus grær,
hún kom til mín og kyssti varir mínar,
ein kornung mær.
Svo hvíslaði hún að mér þessum orðum;
ó, ertu minn?
Ég ansaði á augabragði sama;
víst er ég þinn.
Og síðan hef ég setið þar um nætur
og saknað þín.
Þú vitjaðir mín aðeins einu sinni,
ástin mín.
Og hundrað sinnum hef ég þessum orðum –
hó, ertu þar,
í eftirvænting út í vindinn hvíslað,
- en ekkert svar.
Oddur Björnsson
