Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Yfir hlíðum
Yfir hlíðum
Yfir hlíðum aftanblíða hvílir.
Sefur í víðirunni rótt
rjúpan kvíðalaust og hljótt.
Ennþá vakir ein og kvakar lóa.
Sú hin staka sæta raust
sér að baki felur haust.
Bíddu lóa, berjamóar anga.
Fyrst er snjó í fjöllin ber
frjáls yfir sjóinn lyftu þér.
Daggir falla, dagsól alla kveður,
en mig kallar einhver þrá
yfir fjallaveldin blá.
Hulda
