Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

Fundust: 33 textar

Ísland (Þú álfu vorrar yngsta land)

Þú álfu vorrar yngsta land, vort eigið land, vort fósturland! Sem framgjarns unglings höfuð hátt þín hefjast fjöll við ölduslátt. Þótt þjaki…

Ísland er land þitt

Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð. Ísland er landið sem ungan þig…

Ísland Ísland ég vil syngja

Ísland, Ísland eg vil syngja um þín gömlu, traustu fjöll, þína hýru heiðardali, hamraskjól og vatnaföll, þína fögru fjarðarboga, frjálsan blæ og…

Ísland ögrum skorið

Ísland ögrum skorið eg vil nefna þig sem á brjóstum borið og blessað hefur mig, fyrir skikkun skaparans. Vertu blessað, blessi þig…

Ísland, farsælda frón

(brot)
Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir, hvar er þín fornaldar frægð, frelsið og manndáðin best? Allt er í heiminum hverfult, og…

Íslands hrafnistumenn

Íslands hrafnistumenn lifðu tímamót tvenn þó að töf yrði’ á framsóknarleið. Eftir súðbyrðings för kom hinn seglprúði knör, eftir seglskipið vélknúin skeið.…

Íslands minni

Þið þekkið fold með blíðri brá og bláum tindi fjalla og svanahljómi, silungsá og sælu blómi valla og bröttum fossi, björtum sjá…

Íslandsminni

(brot)
Eitt er landið ægi girt yst á Ránar slóðum, fyrir löngu lítils virt, langt frá öðrum þjóðum. Um þess kjör og aldarfar…

Íslandsvísur

(tileinkaðar hinum háttvirtu þingmönnum á Alþingi, 1901)
Ég vil elska mitt land, ég vil auðga mitt land, ég vil efla þess dáð, ég vil styrkja þess hag. Ég vil…

Íslensk sumarnótt

Enn er nóttin yfir bænum, andar golan hlýtt frá sænum. Sólin gulli slær á voga, sýnist allt af geislum loga. Mýsnar sér…

Íslenskt ástarljóð

Litla, fagra, ljúfa vina, lífstrú mín er bundin þér, sjáðu hvernig sólin brosir sigurglöð við þér og mér. Allt, sem ég um…

Íslenskt vögguljóð á Hörpu

Ég skal vaka og vera góð vininum mínum smáa, meðan óttan rennur rjóð, roðar kambinn bláa, og Harpa syngur hörpuljóð á hörpulaufið…