Aldarafmælisþankar
21. mars, 2026
Bragarhættir
31. mars, 2026
Aldarafmælisþankar
21. mars, 2026
Bragarhættir
31. mars, 2026

Við Kaldalón

Um eina dagsstund, inn við Kaldalón,
við yndissemda landsins okkar njótum.
Við augum blasir ægifagur sjón.
Hér unir gróðurvin und jökulrótum.
Við finnum gjörla Drottins mikla mátt
er móður jarðar undrin fögru sjáum,
því hérna lífsins heyrum æðaslátt
og hreinar myndir náttúrunnar dáum.