Að yrkja
23. apríl, 2026Í Lyfjameðferð á Landsspítalanum
25. apríl, 2026Sjálfslýsingar
Ég er hvorki glöð né gröm
né geng af vonarhvötum,
gömul, hrum og gigtartöm,
gráhærð í slitnum fötum.
—
Ég gekk fyrir spegil einn góðviðrisdag
og geta má nærri að mér brá.
Ég hopaði’ og fékk nærri hjartaslag
er hræðuna’ í speglinum sá.
