Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Það er draumur að vera með dáta

Það mest fyrir augun í bæ þessum ber

að bærinn er fullur af útlendum her.

Þeir spásséra og stálda um stræti og torg

og stúlkurnar dufla við þá inni’ á Borg.

Og spyrji ég stúlku: Hví sé hún svo sæl

þá svarar hún manni um hæl:

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt

og finna hve ljúft þeir láta,

þá líður stundin fljótt.

Og lífið það verður svo létt.

þegar leiðumst við dálítið þétt.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Í Kvennó er yndislegt ungmeyjarskart.

og ótalmörg hjörtu sem fengu þar start.

En nú er þeim bannað að notast við það,

sem náttúran gaf þeim og kom þeim af stað.

Þótt þær megi hermenn ei heyra né sjá,

samt hvíslar hún Ingibjörg H:

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

og finna hve ljúft þeir láta,

þá líður stundin fljótt.

Og þá verður hugurinn hlýr

þegar hvísla þeir, „darling og dear“.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Á æskulýðsfundi var æsingin nóg.

Nú átti að sýna hvað í þjóðinni bjó.

Þeir héldu þar ræður um ættjarðarást.

og bannfærðu þær sem með Bretunum sjást.

Já áhuginn hann var hjá strákunum stór,

en stelpurnar rauluðu í kór:

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt,

og finna hve ljúft þeir láta,

þá líður stundin fljótt.

Að kela og kyssa alein.

og hvísla svo „do it again“.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Bjarni Guðmundsson