Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Angelía
Hví ertu svona döpur kæra vina mín?
Hvers vegna er horfin æskugleði þín?
Er það einhver hulin harmur?
Hví er votur augnahvarmur?
Komdu hérna kæra, hér er minn armur.
Get ég nokkuð huggað þína hrelldu sál?
Hjartans vina segðu mér þitt leyndamál.
Ég sé það eru votar varir þínar.
Ó, viltu ekki leggja þær við mínar.
Angelía, ég á sorg sem enginn veit.
Undrar þig þótt renni tár um kinnar heit?
Ég mun hana engum segja,
þótt ég ætti nú strax að deyja,
á undan þér mín elskulega meyja.
Ég hef eignast vonir, ég hef eignast þrá.
Ég hef eignast það sem ég segi engum frá.
Allt er horfið frá mér gleymt og glatað.
Nú get ég ekki lengur veginn ratað.
