Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þar sem háir hólar
Ég vitja þín æska
Ég
vitja þín æska um veglausan mar
eins og vinar á horfinni strönd.
Og ég man það var vor er við mættumst þar,
þá var morgunn um himinn og lönd.
Þar var söngfuglamergð öll á flugi og ferð
en þó flaug enginn glaðar sinn veg
og um heiðloftin blá vatt sér væng sínum á
og sér vaggaði léttar en ég.
Þá
söng ég um ástina sigurljóð tóm
og um sakleysi, æsku og frið.
Og ég leitaði uppi’ öll hin ljúfustu blóm
til að leggja þau hjarta mitt við.
Kossar margtóku þá unga eldheita þrá
sem að eilífðin gæti’ ekki kælt.
Hvað hún helg var og hrein vita vorkvöldin ein
og hvað vinina dreymdi þá sætt.
Þorsteinn Erlingsson
