Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Bíum bíum bambaló

Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga.

Þegar fjöllin fimbulhá
fylla brjóst þitt heitri þrá
leika skal ég langspil á,
það mun þinn hugann hugga.

Bíum, bíum, bambaló........

Þegar veður geysa grimm,
grúfir yfir hríðin dimm,
kveiki ég á kertum fimm,
burt flæmi skammdegis skugga.

Bíum, bíum, bambaló........

Ef þér sultur sverfur að
sauðakjöt ég hegg í spað
fljótt svo standi full með það
tunna hver, dallur og dugga.

Bíum, bíum, bambaló.......

Ef þig langar eitthvert sinn
ögn að smakka góðfiskinn
fram ég sendi flotann minn;
skínandi skútur og kugga.

Bíum, bíum, bambaló........

Hjá mér bæði hlíf og skjól
hafa skaltu' ef illskufól
flærðir með um foldarból
læðast og launráð brugga.

Bíum, bíum, bambaló........

Jónas Árnason