Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Blámóðukjaftæði

Undir himins háu þaki
hef ég tjaldað minni sál.
Upp í loft þar ligg á baki,
les úr skýjum kvæðamál.
Leikur undir lækjarspræna,
lygilega músíkölsk,
því að náttúran guðsgræna
getur ekki verið fölsk.

Fá sér njólablöð að narta' í
nísku, feitu pöddurnar.
Halda hundasúrupartý
heldri flær og grasmaðkar.
Bláar fjólur, ekki ætar,
eru sumarflíkinni' í.
Úti' á þúfu sitja sætar
sóleyjar á bikiní.

Saman öll við hátíð höldum.
Hrafnar syngja blíðri raust.
Sveiflar bergmál útvarpsöldum
endurgjalds- og kröfulaust,
en ég sjálfur ætla' að segja
sólar veðurfréttirnar.
Geislar sig í tangó teygja,
tjútta út um stéttirnar.

Jón Ragnarsson