Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ég eignaðist fádæma úrillan mann
Ég eignaðist fádæma úrillan mann
og ætti því sjálfsagt að skilja við hann.
Viðlag:
En ég elska’ hann Jóhann, árans kjóann,
jafnvel þó hann sé eins og hann er.
Hann heldur að Guð hafi’ af gæsku við mig
mér gefið það hlutverk að stjana við sig.
Og ég þarf að kveikja hans kvöldpípu í
því kannski hann gæti sig ofreynt á því.
Og kjöt vill hann ólmur fá á hvern sinn disk
en ef hann fær kjöt, ja þá heimtar hann fisk.
Ég giftist um sumar í sólgulum kjól.
Hann seldi þann kjól fyrir viskí og rjól.
Hann tjáði mér ást sína’ af eldmóði fyrst,
en eilífð er síðan hann hefur mig kysst.
Hann sefur með æðarsæng ofan á sér,
en einlægt hann rænir samt teppinu’ af mér.
Jónas Árnason
