Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þegar þú sefur
Við erum saman þó sofir þú rótt
svört er og löng þessi skammdegisnótt,
ég kem að stytta mér stundir.
Hárið ég greiði úr fléttunum fyrst,
fyrst þegar hárið er alls staðar kysst
kyssi ég þær mjallhvítu mundir.
Skjótt líður nóttin. Ég skiptist nú á
í skammdegismyrkrinu ýmist að sjá
og finna nú hvað þú ert fögur.
Einum úr staðnum í annan ég flýg,
oftast þó hunang af vörunum sýg
og bý mér svo til úr því bögur.
En þú leggur hendur um hálsinn á mér
og hundruðum saman á vörum þér ber
kossa, og kvæðalaun gefur.
Nú hef ég sagt þér þá allt eins og er,
að efninu stel ég og ræni frá þér
og það gjöri ég, þegar þú sefur.
Kvæðalaun skilin því engin ég á
og ekki á daginn að heyra né sjá
né finna það hvað þú ert fögur.
Þeim fögnuði ræni eg, því finn ég mér skylt
að færa hann þér aftur og snúa, ef þú vilt,
í kveðlinga, kvæði og bögur.
Páll Ólafsson
