Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Einsi kaldi úr Eyjunum
Ég heiti Einsi kaldi úr Eyjunum
ég er innundir hjá meyjunum.
og hvar sem ég um heiminn fer
þær horfa á eftir mér.
Ég hef siglt um höfin hrein og blá
og hitt þær bestu á Sáníá
Þær slógust þar um mig einar þrjár,
með alveg kolsvart hár.
Tra la la, tra la la,
úti á sjónum er mitt líf
Tra la la, tra la la,
en í landi ást og víf
Ég var lengi í kóngsins Kaupinhöfn,
og kannski gæti ég fáein nöfn
látið þig fá ef langar þig
og laglega biður mig
Og þaðan fór ég til Þýskalands
og þar lenti ég í meyjafans.
Því allar vildu þær eignast mann
og maðurinn ég var hann.
Trallala...
Og austur á fjörðum eitthvert kvöld
ég álpaðist í töðugjöld
Ég bjargaði mér fyrir björgin dimm
því þær báðu mín einar fimm.
Í Borgarfjörðinn brá ég mér
á ball rétt eins og gengur hér
Þar hópurinn allur horfði á mig
og hver vildi reyna sig.
Tralla-la...........
Jón Sigurðsson
